nýtt blogg
jæja nú erum við systurnar komnar með nýtt blogg og það heitir
http://www.blog.central.is/franklin
jæja nú erum við systurnar komnar með nýtt blogg og það heitir
http://www.blog.central.is/franklin
Þá er maður komin í nýja landið og nýju í búðina..búin að koma sér fyrir og fylla fataskápinn og allar skóhillur,en annars lýst mér mjög vel á mig hérna og í dag ætlum við að reyna að finna skólann minn svo ég mæti á réttum tíma í skólann fyrsta daginn alla vega...Það er ekkert merkilegt búið að gerast hérna hjá okkur nema hvað að guðrún vaknaði eins og startrek kall í gær, við vitum ekki alveg ástæðuna en annað hvort eru þetta aukaverkanir af pensilíninu sem hún er að taka eða blautservéttur sem hún notaði til að hreinsa sig í framan en hún var vægast sagt frekar óhugnaleg en ég gat ekki hamið mig í smá stund og tók mér tíma til að hlægja smá :) svo erum við líka búin að eyða þónokkrum tíma í að reyna að spila dvd mynd í tölvunni en það gengur ekki við erum að verða brjálaðar því það eru ekki nema 43 stöðvar í sjónavarpinu, og okkur langar bara að horfa á þessa einu mynd....
Svo sá ég að stelpurnar töpuðu með einu í eyjum...djö...helv...en þær taka þær næst..vona bara að þær hafi ekki verið veðurteptar, ekki það skemmtilegasta..
En guðrún ætlar líka að blogga með mér á þessa síðu þannig að hægt er að fylgjast með okkur söstrene...
vi ses
Jæja þá er komið að því, loksins læt ég verða af því að skella mér til Guðrúnar Gyðu big siss í Aarhus...við förum saman á morgun í smá ferðalag því það tekur nokkra tíma að fara frá Köben til Aarhus..En ég alveg að verða búin að pakka niður dótinu mínu, og þarf að skera verulega af fötum og skóm því það kemst því miður ekki meira fyrir í íbúðinni...ég er líka búin að vera að kveðja herbergið mitt því frú Ásgerður fær að taka við og ætlar að passa upp á sjónvarpið mitt ofl....Annars er bara lítið annað að frétta, nema það er náttla mjög leiðinlegt að fara sona í miðju seasoni í boltanum en hann fer varla langt...
jæja kveð í bili og dönskusletturnar eiga eflaust eftir að segja til sín eftir einhvern tíma...
hej hej
Jæja núna styttist í það að maður fari til útlandanna í nám, nánar tiltekið til Arhus i Danmörku...kellan ætlar að vera þar í eina önn hjá systur og skemmta sér í leiðinni...
Einnig styttist í nýja árið og maður þarf bara að lesa völuspá og þá veit maður hvað gerist ekki erfitt...en annars bara Gleðilegt nýtt ár, ég veit ég á ekki eftir að skrifa neitt meira fyrr en á nýja árinu...see you later
Jæja þá er maður bara búin að klára skilasíðuna þó svo að heimasíðan sé ekki alveg tipp topp....það er alltaf hægt að laga hana meira og meira....
En núna er maður bara að læra eins og crazy fyrir siðfræði....bara að láta vita að ég sé á lífi...
Núna eru síðustu verkefnin að rúlla inn á lokasprettinum...er að reyna að klára námsefni á vef og krækjusíðuna....Annars eru mikið af verkefna skilum í flestum námskeiðum, sem sagt nóg að gera í skólanum
Annars lítið að frétta af verkefnum núna því tímarnir eru aðallega vinnutímar
Wiki er skjákennsla sem til er í kerfi sem hægt er að nálgast það hjá Camtasia Studio. Sá sem er að kenna talar inn á sýnir hvernig hægt er að vinna ákveðin verkefni. Þetta er mjög sniðugt fyrirlestra kerfi, eins og í fjarkennslu. Mjög gott er að koma sér inn í kerfið hjá fjarkennslunni.
Wiki: er vefsíða þar sem maður þarf að hafa password inn á og þegar það er komið þá getum maður breytt efni inn á heimasíðum. Til er íslensk útgáfa á wiki og hægt er að gera tilraunir í sandkassanum þar sem hver sem er getur skrifað inn. Það er hægt að skrifa inn þýðingar á því sem maður vill (það sem vantar inn), en það verður að passa sig að brjóta ekki höfundarétt.
Wikipedia er best heppnaðadæmið um WIKI..
Layers...það er mjög sniðugt að nota layers til þess að byggja upp heimasíðuna og setja inn í myndir og texta mjög þægilegt og nota ég þessa uppsetningu á heimasíðunni minni http://nemendur.khi.is/kolbfran/taeknisaga.htm
Í dag var vinnutími og ég komst að því að ég á eftir að gera 2-3 verkefni sem eiga alls ekki að taka langan tíma...ég þarf að fara að vinna að þeim til þess að allt verði tilbúið á skiladag, en hann er 1.des..
Tæknisaga, námsefni á vef eru meðal annars verkefni sem ég á að gera og ætla ég að klára þau þegar ég verð loksins búin með þetta blessaða Jónasar Hallgrímsson verkefni í talað mál og framsögn..
Jæja ekki meira í bili see jú later